Karfa

Karfa

Greiðslufyrirkomulag:
Tekið er á móti greiðslum með Debit og Kreditkortum í gegnum öruggt greiðslusvæði Borgunar þar sem kortanúmer eru dulkóðuð. Tekið skal fram að ihVerslun geymir ekki né tekur á móti kortanúmerum, allar slíkar upplýsingar fara í gegnum öruggt greiðslusvæði hjá viðurkenndum þjónustuaðila. Einnig er hægt borga með því að millifæra í gegnum banka/heimabanka. Ef viðskiptavinur velur að greiða með millifærslu er mikilvægt að senda kvittun um greiðslu í tölvupósti ihverslun@gmail.com Ef við fáum ekki kvittun í tölvupósti getur afreiðslutími lengst.

Afgreiðsla á vörum:
Eftir að viðskiptavinur hefur greitt og gengið frá pöntun á ihVerslun.is fær hann og ihVerslun.is staðfestingu um pöntunina á tölvupósti. Venjulegur afhendingarferill er 2-3 virkur dagar nema að annað sé tekið fram við lýsingu á vöru. Pantanir er bæði hægt að sækja í verslun okkar en annars eru þær sendar með Íslandspósti. Það er mikilvægt að heimilsfang sé rétt skráð og sá sem aðili sem er skráður á heimilisfang sé einnig merktur á lúgu/póstkassa. Ef svo er ekki, ber ihVerslun.is ekki ábyrgð ef pantanir komast ekki til skila.

Vöruskil:
Almennur skilafrestur á vörum eru 14 dagar og er hægt að skila vörum gegn framvísun reiknings/pöntun. Almennur skilafrestur miðast við að varan sé óopnuð og í upprunalegum umbúðum. Viðskiptavinur ber sjálfur ábyrgð á því að koma vörunni til okkar á sinn kostnað. Endurgreiðsla á vörum sem uppfylla skilyrðin hér að framan getur tekið 2-3 virka daga. Útsöluvörum er ekki hægt að skila. Ef um gallaða vöru er að ræða þurfum við að fá gölluðu vöruna í hendur svo hægt sé að afhenda nýja vöru. Við áskiljum okkur rétt að skipta gölluðum vörum út með nýrri.

Ábyrgð:
ihVerslun.is veitir 2 ára ábyrgð til einstaklinga og 1 árs ábyrgð til fyrirtækja.


 

Almennt um netverslunina
Öll verð í netversluninni eru með 24% virðisaukaskatti. Hægt að hafa samband í gegnum ihVerslun@gmail.com